ÓHAPP slysa- og bótamál
Eigendur
ÓHAPP slysa- og bótamál er traust og áreiðanleg lögmannsstofa sem veitir einstaklingum ráðgjöf og þjónustu í slysa- og skaðabótamálum. Stofan er rekin í samstarfi við CATO Lögmenn á 5. hæð Hafnartorgs í hjarta Reykjavíkur. Stofan á rætur sínar að rekja til ársins 1976 og búa starfsmenn hennar yfir yfirgripsmikilli reynslu og þekkingu á ýmsum sviðum lögfræðinnar.
Lögmenn ÓHAPPS slysa- og bótamála hafa víðtæka reynslu og þekkingu á rekstri bótamála, bæði í samskiptum við tryggingafélög, fyrir úrskurðarnefndum og dómstólum. Þeir hafa reynslu beggja megin borðsins og hafa starfað bæði fyrir tjónþola og fyrir tryggingafélög. Sú reynsla og þekking skilar sér í faglegum og vönduðum vinnubrögðum viðskiptavinum til hagsbóta.
Lögmenn fyrirtækisins annast málið frá upphafi til enda og leggja þeir mikið uppúr því að vera í beinu og góðu sambandi við viðskiptavini sína.
Þjónustan er viðskiptavinum okkar ávallt að kostnaðarlausu ef engar bætur fást greiddar. Engar bætur, engin þóknun. Hafðu samband og kannaðu réttarstöðu þína endurgjaldslaust.